~Bloggsíða Gísla Árna~
Nýtt kerfi
En þar sem ég býst við að það verði ekkert lagt upp úr því að þjóna
þeim sem eru enn á blog.central.is heldur bara þeim sem eru á
minnsirkus.is hef ég ákveðið að skipta um bloggkerfi. Mér líst
ekkert sérstaklega vel á þetta minnsirkus dót þannig að ég hef
Takk fyrir allar heimsóknirnar á þess síðu í gegnum tíðina og
1/3
blogg. Í dag var ég í fyrsta lokaprófinu á þessari önn og það
Arna Rún kom suður á föstudag með foreldrum sínum og um kvöldið
fórum við á Glaumbar að horfa á Idolið. Ína komst áfram og er þar
með komin í úrslit og núna er bara að vona það besta fyrir þáttinn
Eftir Idolið lá leiðin á Birkimelinn og við fórum að sofa. Á
laugardeginum fór við í skírn hjá Orra Frey og Hjördísi klukkan 12
en fékk stelpan nafnið Hulda Sigrún og er þar með skírð í höfuðið á
báðum ömmum sínum en þær heita einmitt báðar Hulda. Arna Rún vildi
nú eigna sér –rún endinguna í Sigrún en það er spurning hvort það
Eftir skírnina sjálfa fórum við í skírnarveislu heima hjá Orra og
Hjördísi og þar var raðað í sig nokkrum kökusneiðum. Síðan klukkan
hálf fimm fórum við aftur á Birkimelinn og fórum síðan þaðan til
Keflavíkur til að fara út að borða á Ránni. Kvöldverðurinn var í
tilefni gullbrúðkaupsafmæli sem amma og afi áttu á laugardag. Það
voru einhverjir 20 manns eða eitthvað álíka sem voru mættir á Rána.
Maturinn var nokkuð góður þar og maður var orðinn vel saddur eftir
tvær veislur á sama deginum. Eftir matinn skruppum við aðeins til
Sigga upp á sjúkrahús og fórum síðan þaðan til Reykjavíkur
Á sunnudeginum lögðum við af stað um hádegið til Keflavíkur á nýjan
leik til að fara í enn eina veisluna. Nú var það fermingarveisla
hjá Heru Sól. Veislan hófst klukkan 13 og þar var boðið upp á alls
kyns kræsingar. Síðan um 16 leytið var komið að því að Arna Rún
þurfti að fara að leggja af stað heim, en hún fékk far með Ella
Gærdagurinn fór síðan allur í lærdóm fyrir prófið í morgun. Og nú
En þetta er líklega orðið fínt í bili. Það eru bara 6 dagar þangað
til að ég fer í páskafrí og þá fer ég norður til Húsavíkur og verð
En ég segi þetta bara fínt í bili. Reyni að skrifa aftur í vikunni.
Önnin að verða búin...
vona að ég fari að fá allt í einu þvílíkt bloggstuð yfir mig á
En annars er það að frétta af mér að ég er byrjaður á fullu í
próflestri og í gær og fyrradag las ég einar 200 bls eða þar um bil
og komst með því yfir lesefni í heilu fagi. Ég er mjög ánægður með
það að vera búinn með það. Síðan verður bara stífur lærdómur næstu
11 daga nema um helgina og síðan fer ég norður í páskafrí. Ég er
ekki alveg að átta mig á því að það eru bara 5 dagar í fyrsta
lokaprófið mitt. Þessi vetur er bara að verða búinn. Áður en ég
Annars fékk ég að vita það í fyrradag að ég er kominn með
sumarvinnu, en ég mun vinna í Glitni á Húsavík. Ég mun bara vinna
við gjaldkerastörf. Ég er rosalega ánægður með það að fá þessa
vinnu því þetta er eiginlega sú vinna sem ég hafði vonað mest af
En það er lítið meira að frétta af mér nema það að Arna Rún er að
koma suður á morgun. Það verður rosalega gaman að hitta hana. Síðan
verður nóg étið um helgina. Það verða tvær veislur þannig að það er
spurning hvort maður þurfi að fara út að hlaupa eftir helgina til
Munið eftir að setja skoðanir. Það sem þið setjið þar þarf ekkert
endilega að tengjast því sem ég skrifa um. Bara það sem þið eruð að
Ekkert að gerast...
Ég hef verið að gera eitthvað voðalega fátt nema að læra
Ég er að vinna í síðasta verkefni annarinnar en það er hópverkefni
í þjóðhagfræði. Það verður rosalega gott þegar það verður búið. Ég
var í miðannaprófi í gær og það gekk alveg ágætlega. Ætli ég verði
ekki á svipuðu róli og í fyrra miðannaprófinu en hærra
Í þessari viku hef ég bara farið heim eftir skóla og lærdóm og
Ég get nú ekki neitað því að maður er farinn að hlakka til
páskafrísins. Reyndar hlakka ég eiginlega fyrst til helgarinnar
eftir rúma viku en þá kemur Arna Rún suður og við förum í 2 veislur
en það er skírn hjá bróður Örnu Rúnar á laugardeginum og ferming
hjá Sússu á sunnudeginum. Það mætti alveg hitta á einhverja aðra
helgi en svona rétt fyrir fyrsta lokapróf en maður vinnur upp þann
tíma sem maður tapar um helgina með því að vera duglegur um þessa
Ég held ég láti þetta nægja í bili. Það hefur ekkert gerst hjá mér
Skóli skóli
Annars er nóg að gera í skólanum hjá mér og maður var þvílíkt
duglegur um helgina og skellti sér upp í skóla til að læra klukkan
9 báða morgnana. Enda er ennþá smá þreyta í manni eftir helgina. Á
föstudagskvöldið skellti ég mér á Idol með Kjartani og Finni. Það
var fínt. Reyndar fannst mér eiginlega enginn keppandi syngja neitt
voðalega vel en Alexander datt út og ég er nokkuð sáttur með það
því að það fór svo ótrúlega mikið í taugarnar á mér hvernig hann
var alltaf með hendina þegar hann söng. Hann lagði hana alltaf á
brjóstkassann á sér. Það var eitthvað við það sem fór svo í
taugarnar á mér því hann gerði þetta alltaf þegar hann söng. Ég tók
einmitt eftir því að þegar hann söng lagið sitt í lokin að þá
endaði hann það á því að vera með höndina á brjóstkassanum þannig
að hann endaði sinn Idolferil í þeirri stellingu sem pirraði
Annars hefur ekki margt verið að gerast hjá mér upp á síðkastið.
Var í síðustu viku og um helgina að klára tvö verkefni og það er
mjög gott að vera búinn með þau. Núna á ég bara eftir að fara í
miðannapróf á miðvikudag(frekar skrýtið að kalla það MIÐANNApróf
þegar það er lagt fyrir í næstsíðustu viku annarinnar) og síðan er
En það er eitt jákvætt við það að prófin séu að fara að byrja
bráðum. Þá er farið að styttast í páskafrí. Ég fæ heilar 2 vikur í
En þar sem eitthvað fátt hefur verið að gerast hjá mér upp á
síðkastið annað en námið þá hef ég eiginlega ekkert meira að segja.
Reyni að fara að vera duglegri að blogga. Minni á nýja
Keflavík er greinilega bestir
Ég biðst afsökunar á því en ég hef bara ekki verið í neinu
bloggstuði upp á síðkastið. Síðan hefur þetta ekki verið það
En ég fór reyndar á Keflavík-Njarðvík á fimmudagskvöldið og sá
Keflvíkinga pakka Njarðvíkingum saman þar og tryggja sér
deildarmeistaratitilinn. Fyrsti körfuboltaleikurinn sem ég fer á í
mörg ár. Síðan á föstudaginn horfði ég að sjálfsögðu á idolið og
Ína heldur áfram að standa sig frábærlega. Ég er farinn að halda að
Á laugardaginn fór ég með Njáli upp í Reykjaneshöll að horfa á
Keflavík-KR í deildarbikarnum. Og það þarf ekki að spyrja að því
hvernig sá leikur fór, að sjálfsögðu tóku Keflvíkingarnir þetta
auðveldlega 3-1 þar sem Baldur Sig skoraði eitt markið. Reyndar var
þetta ekkert voðalega sannfærandi sigur en maður þarf að skora mörk
til að vinna leiki, eitthvað sem Liverpool menn ættu svo sannarlega
Síðan í gærkvöldi var ég að hjálpa Sússu og Herði að flytja rúmin
þeirra í nýja húsið. Það var enn verið að leggja lokahönd á
breytingarnar í húsinni en mér sýndist þetta allt saman líta nokkuð
vel út. Það verður gaman að sjá hvernig þetta verður þegar allt er
Ég held ég láti þetta bara nægja í bili. Nenni ekki meiru.
Góð helgi!
Við fórum upp á flugvöll að sækja þá. Upphaflega áttu þeir að lenda
á milli 21 og 22 en það varð einhver seinkun á fluginu vegna
vandræði við innritunina. Þeir lentu síðan klukkan 23:50 og síðan
tók við ágætis bið eftir að þeir kæmu í gegnum fríhöfnina og allt
það. Þetta endaði allavega með því að ég fór að sofa um 2 leytið og
vaknaði síðan eldhress klukkan 6:10 í morgun. Enda var ég áðan í
tíma og ég var að rembast við að halda mér vakandi, augnlokin voru
En núna er ég að bíða eftir pabba, hann er að koma í bæinn á bílnum
Arna Rún kom suður um helgina. Það var mjög skemmtilegt. Við fórum
í Smáralindina að horfa á idolið á föstudaginn og Ína var algjör
snilld. Það var bara mjög gaman í Smáralindinni. Eftir þáttinn
fórum við aðeins að hitta Ínu og hún var ekki alveg að átta sig á
Á laugardaginn vaknaði ég síðan rúmlega 8 til að fara að læra.
Þegar ég var búinn að læra á milli 12 og 13 fór ég yfir í Kringluna
þar sem Arna Rún, Hildur Eva, Hulda og Unnur voru. Þá tók við löng
og ströng verslunarferð. Við vorum í Kringlunni og Smáralind til
ca.17. Síðan klukkan 17:15 fékk ég hringingu frá pabba þar sem hann
var að leyfa mér að heyra You'll never walk alone sungið. Það hefur
Um kvöldið fórum við síðan að borða á Pizza Hut og fengum geðveikt
góðar pizzur eins og venjulega á Pizza Hut. Kvöldið fór síðan bara
í afslöppun. Stelpurnar lögðu síðan af stað heim um hádegið á
Verkefni
nokkrum orðum núna. Í dag er öskudagur, ég sit í matsalnu í
skólanum en mér sýnist enginn hafa tekið upp á því að koma í
búningi í skólan. Ég skil það nú ekki alveg. Það mætti halda að
fólk sem er komið í háskóla sé vaxið upp úr svoleiðis löguðu. En
það getur varla verið. Fólk er kannski að spara búninginn þangað
Annars er allt fínt að frétta af mér. Reyndar talsverð
verkefnavinna í gangi þessa dagana en maður kemst nú í gegnum það.
Síðan á föstudaginn kemur Arna Rún suður með vinkonum sínum og er
stefnan sett á Smáralindina á föstudagskvöldið til að fara á Idol.
Það verður ábyggilega mjög gaman. Það er bara vonandi að Ína haldi
Síðustu 2 dagar hafa verið frekar rólegir hjá mér en þó talsverð
verkefnavinna í gangi. Og þessi verkefnavinna heldur áfram allavega
fram í miðja næstu viku. Er einmitt að fara að hitta hópinn minn í
stofnun fyrirtækja klukkan 13 í dag og síðan hópinn minn í
Núna á föstudaginn eru pabbi, Siggi og Njáll að fara út til
Liverpool að horfa á Liverpool – Charlton. Ég hefði nú ekkert á
móti því að vera að fara á leik á Englandi en það verður að bíða
betri tíma. Þetta á ábyggilega eftir að vera ótrúlega gaman hjá
Húsavíkurferð
helgin að baki og því um að gera að segja frá helstu atburðum
hennar. Ég fór í skólann á föstudaginn síðasta og mætti í
dæmatíma þar. Eftir dæmatímana fór ég síðan í próf í fjármálum
fyrirtækja og tel ég mig bara hafa staðið mig nokkuð vel í því
en þó veit maður aldrei nákvæmlega hvernig manni gengur í svona
Strax eftir próf var stefnan sett á Reykjavíkurflugvöll þar sem ég
þurfti að bíða í mjög langri röð til að komast í innritunina. Síðan
var komið að flugina norður, það gekk vel og ég lenti á Akureyri
klukkan 18:05, ef ég man rétt. Þá var bara farið beint upp í bíl og
Þegar komið var á Húsavík þurfti maður að græja sig fyrir árshátíð
á mettíma og komum við Arna Rún á árshátíðina rétt eftir að Steinn
Ármann, veislustjóri kvöldsins, hafði byrjað að tala. Ég skemmti
mér alveg konunglega og mér fannst Steinn Ármann alveg frábær.
Á laugardeginum var bara ákveðið að slaka á. Ég og Arna Rún vorum
bara heima hjá henni og höfðum það rólegt. Reyndar þurfti ég að
byrja daginn á því að vinna aðeins í hópverkefni(aldrei fær maður
frí) en síðan tók við afslöppun. Á sunnudag horfði ég á síðan á Man
Utd vinna Wigan sannfærandi 4-0 og það var fínt. Síðan bökuðum við
Síðan rétt fyrir 19 ákvað ég að það væri kominn tími á að fara að
leggja af stað til Akureyrar en ég átti flug klukkan 20:25. Síðan
þegar ég var að verða kominn inn í Eyjafjörð fæ ég SMS þar sem var
tilkynnt að fluginu væri frestað og ég ætti ekki að mæta fyrr en
klukkan 21:15 þannig að við ákváðum að fara aðeins á rúntinn og
svona. Síðan fékk ég annað SMS og þá var verið að fresta fluginu
meira og ég átti að mæta klukkan 21:40 en þá var víst svo mikil
þoka í Reykjavík að flugvélarnar gátu ekki lent þar strax og því
frestaðist flugið aftur norður og þar af leiðandi líka flugið mitt
En á endanum gekk þetta þó allt saman upp og ég gat komist suður.
En ég læt þetta nægja núna. Endilega kvittið í gestabók og setjið
Árshátíð á morgun :)
frétta af mér. Ég fór reyndar í klippingu í gær og er bara mjög
sáttur með útkomuna þar. Það er komið frekar langt síðan ég hef
Síðan verður morgundagurinn líklega nokkuð fjörugur hjá mér. Ég
byrja daginn á því að fara í skólann og undir lok skóladagsins fer
ég í próf. Síðan ætla ég að biðja Finn um að vera tilbúinn fyrir
utan skólann um leið og ég er búinn í prófinu til að skutla mér út
á flugvöll því ég á flug tæpum klukkutíma eftir próf. Ég flýg
norður og fer síðan beint upp í RAV4 og keyri til Húsavíkur. Ef að
allt gengur upp ætti ég að vera kominn til Húsavíkur rúmlega 19
leytið og þá hef ég tæpan hálftíma til að stökkva í sturtu og klæða
mig fyrir árshátíð FSH. Þetta verður svolítið stress því allt
Í gær horfði ég á Chelsea – Barcelona og þetta er einn besti leikur
sem ég hef séð í langan tíma. Barcelona voru alveg stórkostlegir á
vellinum og unnu sannfærandi sigur. En Mourinho þurfti að
sjálfsögðu að væla eitthvað eftir leikinn og kvarta yfir dómaranum.
Hann virðist ekki geta sætt sig við tap þar sem andstæðingurinn var
En ég held ég láti þetta nægja í bili. Skrifa meira seinna.
Til hamingju Ísland
nokkuð fín og einkenndist hún svolítið af söngvakeppnum. Kjartan
var í heimsókn hérna á suðurlandinu og hitti ég hann á föstudag og
En annars byrjaði helgin á því að ég fór í skólann á föstudag og
var eitthvað fram á miðjan dag í honum og fór síðan að hitta Finn
og Kjartan. Við tókum hinn hefðbundna Kringlu/Smáralind rúnt og
enduðum síðan á Players að horfa á Idolið eftir mikla leit að stað
sem væri að sýna það. Ég benti einmitt á að það væri frekar
furðulegt að vera að horfa á beina útsendingu á einhverju sem væri
að fara fram einhverjum 300 metrum í burtu, en Players og Smáralind
er frekar nálægt hvort öðru. En það breytir því ekki að þetta var
mjög skemmtilegur þáttur og Ína hélt áfram standa sig mjög vel. Ég
er frekar ánægður með að Elfa hafi dottið út því hún fór alltaf
svolítið í taugarnar á mér. Kannski bara því mér fannst hún
eiginlega aldrei neitt sérstök en samt elskaði dómnefndin hana.
Á laugardaginn fór ég aftur í bæinn og aftur á Players en núna til
að horfa á Liverpool - Man Utd. Því miður átti mínir menn
arfaslakan dag og töpuðu 1-0 með ógeðslegu marki frá ljósastaurnum
í liði Liverpool. Alls ekki fallegt... En hins vegar gerðist ljótur
hlutur í leiknum líka, en Alan Smith var að henda sér fyrir skot
frá John Arne Riise og festi annan fótinn svona í grasinu og sneri
upp á löppina á sér og er bara ökklabrotinn og ökklinn fór úr
Eftir leikinn fórum við Kjartan einhvern smá rúnt, kíktum aðeins í
Smáralind og Kringluna en síðan um kvöldið fórum við heim til Finns
og horfðum á Undankeppni Eurovision. Þarna voru nokkur ágæt lög, að
mínu mati. En samt var eitt sem var yfirburðaflottast og vann
sannfærandi sigur. Ég bjóst nú ekki alveg við svona miklum
yfirburðum en Silvía Nótt fékk rúmlega 70 þúsund atkvæði. En áður
en úrslitin voru tilkynnt spáði ég því að Silvía myndi vinna,
Friðrik Ómar myndi lenda í öðru sæti og Regína í því þriðja þannig
Eftir Eurovision horfði ég á spaugstofuna en fór síðan bara heim
Gærdagurinn fór síðan að hluta til í lærdóm, en við fórum líka í
heimsókn til Njáls og Heiðu en Heiða átti afmæli í gær. Þar var
Góðan daginn...
duglegri að blogga. Ætli ég verði ekki að standa við það. Annars er
nú ekkert voðalega mikið að frétta af mér. Fór reyndar í fyrsta
miðannaprófið mitt í gær og ég held að það hafi bara gengið allt í
lagi. Þetta var reyndar 100% krossapróf og það getur verið soldið
erfitt að vita hvernig manni gekk í þannig prófum því ef það séu
nokkrar spurningar sem maður heldur að maður hafi gert rétt en
Á morgun kemur pabbi suður með flugi ásamt Jóa en þeir ætla að vera
hér um helgina. Pabbi kemur einmitt með síma handa mér í þessari
ferð en mamma og pabbi ákváðu bara að gefa mér nýjan síma þar sem
minn sími er orðinn ansi slappur. Batteríið í honum er orðið
lélegt, takkarnir virka varla og síðan hringir síminn stundum ekki
þó hann sé ekki á silent og stundum titrar hann ekki þegar hann á
að gera það. Og síðan er myndavélin í honum hætt að virka, en það
er reyndar aukaatriði. Þessi nýi sími á að vera verðlaun fyrir
góðan námsárangur:) Ef það eru fleiri sem eru ólmir í að gefa
Síðan er Kjartan að fara að koma suður í dag. Ég býst ekki við að
hitta neitt á hann í dag þar sem ég nenni ekki að fara að bíða í
bænum þangað til í kvöld því ég er búinn í skólanum fyrir hádegi en
þarf reyndar síðan að fara á fund í stofnun fyrirtækja, en við erum
að fara að hitta leiðbeinandann okkar þar. Þannig að ég býst bara
við að hitta Kjartan á morgun og líklega eitthvað á laugardag líka,
en stefnan er sett á að fara á Players eða eitthvað að horfa á
Ég held að þetta hljóti að vera orðið ágætt í bili. Fínt að vita
til þess að ég er farinn að geta búið til sæmilega langan texta úr
afar litlu efni þannig að ég ætti að geta haldið þessu bloggi
Klukk...
Fjórir staðir sem ég hef búið á : (ég ætla að fá að fjölga þeim
Ég held áfram...
láta niðurstöður skoðanakönnunarinnar ráða framtíð þessarar síðu
og það ætla ég að standa við þannig að ég verð víst að taka mig
saman í andlitinu og byrja að blogga almennilega. Á þessari viku
sem skoðanakönnunin var uppi komu inn 27 atkvæði sem verður að
teljast ágætt held ég, sérstaklega miðað við það hversu latur ég
hef verið við að blogga. Grunsemdir hafa þó vaknað um að
einhverjir hafi kosið oftar en einu sinni en þar sem
niðurstöðurnar voru svo afgerandi verður engin rannsókn á
En um helgina var stefnan sett á Húsavík. Mikil óvissa hafði verið
um ferðina þar sem kærasta Orra Freys(bróður Örnu Rúnar) var ólétt
og átti að fara að fæða. En hún hafði ekkert fætt á föstudag þannig
að ferðin var farin. Ég kom á Húsavík um kvöldmatarleytið á
föstudag og ég fór þá strax til Örnu Rúnar. Síðan horfðum við á
Idolið og þáttinn sem er á eftir því. Síðan kíktum við út og tókum
Á laugardagsmorgun var ég vakinn með þeim fréttum að Hjördís væri
búin að fæða stúlku og því var ákveðið að stökkva upp í bíl eftir
hádegið og bruna suður. Þannig að þetta var frekar stutt stopp á
víkinni. Við vorum komin til Reykjavíkur á milli 19 og 20 og við
fórum bara beint upp á spítala að sjá barnið. Við gerðum nú
eitthvað fátt um kvöldið, horfðum eitthvað á sjónvarp og svona en
fórum síðan heim til frænda Örnu Rúnar þar sem við fengum að
Sunnudagurinn fór síðan í að sjá barnið aftur og skreppa í bakarí
og svona. Síðan fór Arna Rún aftur heim um miðjan daginn og þá fór
Í morgun fékk ég síðan bara far í bæinn með Sússu og Herði og fór
að hitta hópinn minn í Stofnun fyrirtækja og við vorum að láta
Síðan er að koma að fyrsta miðannaprófinu en það er á miðvikudag
klukkan 9 í þjóðhagfræði. Það þýðir að dagurinn í dag og á morgun
Ég held ég láti þetta nægja í bili. Ég ætla að biðja alla sem lesa
þetta um að skrifa komment. Það þarf ekki að vera merkilegt
komment, bara láta vita að þið hafið lesið þetta svo ég hafi
einhverjar hugmynd um það hverjir eru að skoða síðuna. Þá get ég
kannski séð hvort að þessi 27 atkvæði séu raunhæf. Sem sagt ALLIR
Ny könnun
ekki nogu oft er liklega kominn timi a að fara að skella einhverju
inn. Eg verð að biðjast afsökunar a að það vantar kommur fyrir ofan
broddstafi. Tölvan er með einhver leiðindi gagnvert mer. En annars
er skolinn kominn a fullt. Buinn að skila einu hopverkefni og við
vorum hæstir i afanganum með 9,75. Siðan vorum við að skila skyrslu
tengda fyrsta verkefninu i gærkvöldi og það er bara að vona að hun
verði lika goð. Annars er ekki mikið að fretta af mer personulega.
Siðustu dagar hafa bara farið i skola þar sem talsverð vinna for i
þessa skyrslu. Um daginn kikti eg aðeins i heimsokn i ibuðina hja
Finni og Birgittu og er þetta alveg agætis ibuð syndist mer. A
föstudaginn sotti eg pabba sem var að koma suður með flugi til að
fara i skolann. Hann flaug siðan aftur heim i gær. Eg held að það
seu yfirgnæfandi likur a þvi að Silvia Nott fari i Eurovision svo
framarlega að hun verði ekki rekin ur keppni. Hun er bara með
langflottasta lagið og a eftir að pakka saman þessari undankeppni.
Siðan horfði maður a idolið a föstudag og það var skemmtilegt
fannst mer. Eg var anægður með að Angela datt ut þvi hun hefur
einhvern veginn alltaf farið i taugarnar a mer. Eg veit ekki hvað
það er við hana. Siðan fer að styttast fljotlega i miðannaprofin...
Það verður svaka stuð....;) I dag var fyrsti timinn i afanganum
“Stjornun fyrirtækja” og eg fekk að sja með hverjum eg verð i hop.
Eg þekki nu engan þeirra sem er i hopnum en það a liklega eftir að
breytast fljotlega. Við erum tveir strakar i hopnum og siðan eru
fjorar stelpur. Hinn strakurinn heitir einmitt lika Gisli. Eg held
eg lati þetta nægja i bili. Eg ætla að reyna að fara að vera
duglegri að blogga. Eg er reyndar buinn að vera að spa i að taka
mer kannski frekar 2-3 vikna fri fra blogginu og byrja siðan
endurnærður eftir það eða að reyna að koma mer bara strax i
gang.... Eg er að hugsa um að leyfa ykkur að kjosa um það. Eg nota
niðurstöður kosninganna eins og staðan verður eftir næstu helgi.