~Bloggsíða Gísla Árna~
Útvarp
Hvað veistu um mig?
22.04.2006 16:24:41 / gisliarni

Nýtt kerfi

Jæja, komst framhjá einhverju leiðindaábendingu um að fara yfir á minnsirkus.is í staðinn.
En þar sem ég býst við að það verði ekkert lagt upp úr því að þjóna þeim sem eru enn á blog.central.is heldur bara þeim sem eru á minnsirkus.is hef ég ákveðið að skipta um bloggkerfi. Mér líst ekkert sérstaklega vel á þetta minnsirkus dót þannig að ég hef ákveðið að fara frekar á bloggar.is
Þannig að núna er nýja síðan mín orðin:

http://gisliarni.bloggar.is

Þannig að ef fólk vill fylgjast með mér áfram er best að setja þetta bara í favorites :)

Takk fyrir allar heimsóknirnar á þess síðu í gegnum tíðina og vonandi verður fólk jafn duglegt að fara á nýju síðuna...

Bless bless.....

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 15:14:34 / gisliarni

1/3

Nú er kominn tími á nýtt blogg. Í dag var ég í fyrsta lokaprófinu á þessari önn og það gekk alveg ágætlega og er ég svona nokkuð sáttur með mig.
En svo ég segi aðeins frá helginni þá var nóg að gera hjá mér.
Arna Rún kom suður á föstudag með foreldrum sínum og um kvöldið fórum við á Glaumbar að horfa á Idolið. Ína komst áfram og er þar með komin í úrslit og núna er bara að vona það besta fyrir þáttinn á föstudaginn.
Eftir Idolið lá leiðin á Birkimelinn og við fórum að sofa. Á laugardeginum fór við í skírn hjá Orra Frey og Hjördísi klukkan 12 en fékk stelpan nafnið Hulda Sigrún og er þar með skírð í höfuðið á báðum ömmum sínum en þær heita einmitt báðar Hulda. Arna Rún vildi nú eigna sér –rún endinguna í Sigrún en það er spurning hvort það hafi verið pælingin á bakvið nafnið.
Eftir skírnina sjálfa fórum við í skírnarveislu heima hjá Orra og Hjördísi og þar var raðað í sig nokkrum kökusneiðum. Síðan klukkan hálf fimm fórum við aftur á Birkimelinn og fórum síðan þaðan til Keflavíkur til að fara út að borða á Ránni. Kvöldverðurinn var í tilefni gullbrúðkaupsafmæli sem amma og afi áttu á laugardag. Það voru einhverjir 20 manns eða eitthvað álíka sem voru mættir á Rána. Maturinn var nokkuð góður þar og maður var orðinn vel saddur eftir tvær veislur á sama deginum. Eftir matinn skruppum við aðeins til Sigga upp á sjúkrahús og fórum síðan þaðan til Reykjavíkur aftur.
Á sunnudeginum lögðum við af stað um hádegið til Keflavíkur á nýjan leik til að fara í enn eina veisluna. Nú var það fermingarveisla hjá Heru Sól. Veislan hófst klukkan 13 og þar var boðið upp á alls kyns kræsingar. Síðan um 16 leytið var komið að því að Arna Rún þurfti að fara að leggja af stað heim, en hún fékk far með Ella norður.
Gærdagurinn fór síðan allur í lærdóm fyrir prófið í morgun. Og nú þarf maður að fara að læra af krafti fyrir prófið á föstudag.
En þetta er líklega orðið fínt í bili. Það eru bara 6 dagar þangað til að ég fer í páskafrí og þá fer ég norður til Húsavíkur og verð þar yfir páskana. Það verður fínt að geta skroppið norður.
En ég segi þetta bara fínt í bili. Reyni að skrifa aftur í vikunni. Bless bless.


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 09:48:54 / gisliarni

Önnin að verða búin...

Ég hef verið ótrúlega latur við að blogga upp á síðkastið og ég vona að ég fari að fá allt í einu þvílíkt bloggstuð yfir mig á næstunni.
En annars er það að frétta af mér að ég er byrjaður á fullu í próflestri og í gær og fyrradag las ég einar 200 bls eða þar um bil og komst með því yfir lesefni í heilu fagi. Ég er mjög ánægður með það að vera búinn með það. Síðan verður bara stífur lærdómur næstu 11 daga nema um helgina og síðan fer ég norður í páskafrí. Ég er ekki alveg að átta mig á því að það eru bara 5 dagar í fyrsta lokaprófið mitt. Þessi vetur er bara að verða búinn. Áður en ég veit af verð ég bara búinn með þennan blessaða háskóla.
Annars fékk ég að vita það í fyrradag að ég er kominn með sumarvinnu, en ég mun vinna í Glitni á Húsavík. Ég mun bara vinna við gjaldkerastörf. Ég er rosalega ánægður með það að fá þessa vinnu því þetta er eiginlega sú vinna sem ég hafði vonað mest af öllu að ég myndi fá.
En það er lítið meira að frétta af mér nema það að Arna Rún er að koma suður á morgun. Það verður rosalega gaman að hitta hana. Síðan verður nóg étið um helgina. Það verða tvær veislur þannig að það er spurning hvort maður þurfi að fara út að hlaupa eftir helgina til að ná af sér því sem maður bætir á sig um helgina;)
En ég ætla að segja þetta gott núna.
Bless

Munið eftir að setja skoðanir. Það sem þið setjið þar þarf ekkert endilega að tengjast því sem ég skrifa um. Bara það sem þið eruð að hugsa...

» 12 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 21:24:21 / gisliarni

Ekkert að gerast...

Best að skella niður nokkrum línum á blað. Reyndar ekki blað heldur meira á tölvuskjá, en það skiptir nú ekki máli.
Ég hef verið að gera eitthvað voðalega fátt nema að læra eitthvað.
Ég er að vinna í síðasta verkefni annarinnar en það er hópverkefni í þjóðhagfræði. Það verður rosalega gott þegar það verður búið. Ég var í miðannaprófi í gær og það gekk alveg ágætlega. Ætli ég verði ekki á svipuðu róli og í fyrra miðannaprófinu en hærra miðannaprófið gildir til lokaeinkunnar.
Í þessari viku hef ég bara farið heim eftir skóla og lærdóm og slakað á þar þannig að það er ekki mikið sem ég sagt frá.
Ég get nú ekki neitað því að maður er farinn að hlakka til páskafrísins. Reyndar hlakka ég eiginlega fyrst til helgarinnar eftir rúma viku en þá kemur Arna Rún suður og við förum í 2 veislur en það er skírn hjá bróður Örnu Rúnar á laugardeginum og ferming hjá Sússu á sunnudeginum. Það mætti alveg hitta á einhverja aðra helgi en svona rétt fyrir fyrsta lokapróf en maður vinnur upp þann tíma sem maður tapar um helgina með því að vera duglegur um þessa helgi og í vikunni.
Ég held ég láti þetta nægja í bili. Það hefur ekkert gerst hjá mér þannig að það er frá engu að segja.

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 09:39:33 / gisliarni

Skóli skóli

Það er einhver bloggleti í gangi hjá mér þessa dagana. Ég er farinn að skrifa bara á vikufresti.
Annars er nóg að gera í skólanum hjá mér og maður var þvílíkt duglegur um helgina og skellti sér upp í skóla til að læra klukkan 9 báða morgnana. Enda er ennþá smá þreyta í manni eftir helgina. Á föstudagskvöldið skellti ég mér á Idol með Kjartani og Finni. Það var fínt. Reyndar fannst mér eiginlega enginn keppandi syngja neitt voðalega vel en Alexander datt út og ég er nokkuð sáttur með það því að það fór svo ótrúlega mikið í taugarnar á mér hvernig hann var alltaf með hendina þegar hann söng. Hann lagði hana alltaf á brjóstkassann á sér. Það var eitthvað við það sem fór svo í taugarnar á mér því hann gerði þetta alltaf þegar hann söng. Ég tók einmitt eftir því að þegar hann söng lagið sitt í lokin að þá endaði hann það á því að vera með höndina á brjóstkassanum þannig að hann endaði sinn Idolferil í þeirri stellingu sem pirraði mig:evil:
Annars hefur ekki margt verið að gerast hjá mér upp á síðkastið. Var í síðustu viku og um helgina að klára tvö verkefni og það er mjög gott að vera búinn með þau. Núna á ég bara eftir að fara í miðannapróf á miðvikudag(frekar skrýtið að kalla það MIÐANNApróf þegar það er lagt fyrir í næstsíðustu viku annarinnar) og síðan er eitt skilaverkefni eftir og síðan bresta lokaprófin á8|
En það er eitt jákvætt við það að prófin séu að fara að byrja bráðum. Þá er farið að styttast í páskafrí. Ég fæ heilar 2 vikur í afslöppun yfir páskana og það verður mjög gott.
En þar sem eitthvað fátt hefur verið að gerast hjá mér upp á síðkastið annað en námið þá hef ég eiginlega ekkert meira að segja. Reyni að fara að vera duglegri að blogga. Minni á nýja skoðanakönnun sem er komin upp.
Endilega sem flestir að skrifa í komment eða í gestabók.
Blessbless

» 8 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 10:34:19 / gisliarni

Keflavík er greinilega bestir

Sæl og blessuð. Jæja, núna er komin vika síðan ég bloggaði síðast. Ég biðst afsökunar á því en ég hef bara ekki verið í neinu bloggstuði upp á síðkastið. Síðan hefur þetta ekki verið það viðburðarík vika hjá mér.
En ég fór reyndar á Keflavík-Njarðvík á fimmudagskvöldið og sá Keflvíkinga pakka Njarðvíkingum saman þar og tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Fyrsti körfuboltaleikurinn sem ég fer á í mörg ár. Síðan á föstudaginn horfði ég að sjálfsögðu á idolið og Ína heldur áfram að standa sig frábærlega. Ég er farinn að halda að það sé bara í ættinni að syngja svona vel;)
Á laugardaginn fór ég með Njáli upp í Reykjaneshöll að horfa á Keflavík-KR í deildarbikarnum. Og það þarf ekki að spyrja að því hvernig sá leikur fór, að sjálfsögðu tóku Keflvíkingarnir þetta auðveldlega 3-1 þar sem Baldur Sig skoraði eitt markið. Reyndar var þetta ekkert voðalega sannfærandi sigur en maður þarf að skora mörk til að vinna leiki, eitthvað sem Liverpool menn ættu svo sannarlega að vita;)
Síðan í gærkvöldi var ég að hjálpa Sússu og Herði að flytja rúmin þeirra í nýja húsið. Það var enn verið að leggja lokahönd á breytingarnar í húsinni en mér sýndist þetta allt saman líta nokkuð vel út. Það verður gaman að sjá hvernig þetta verður þegar allt er tilbúið.
Ég held ég láti þetta bara nægja í bili. Nenni ekki meiru.

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 10:24:25 / gisliarni

Góð helgi!

Núna eru pabbi, Siggi og Njáll komnir heim frá Englandi, en þeir komu í gærkvöldi.
Við fórum upp á flugvöll að sækja þá. Upphaflega áttu þeir að lenda á milli 21 og 22 en það varð einhver seinkun á fluginu vegna vandræði við innritunina. Þeir lentu síðan klukkan 23:50 og síðan tók við ágætis bið eftir að þeir kæmu í gegnum fríhöfnina og allt það. Þetta endaði allavega með því að ég fór að sofa um 2 leytið og vaknaði síðan eldhress klukkan 6:10 í morgun. Enda var ég áðan í tíma og ég var að rembast við að halda mér vakandi, augnlokin voru agalega þung ;)
En núna er ég að bíða eftir pabba, hann er að koma í bæinn á bílnum hans Sigga, ég fer með þeim á flugvöllinn og tek síðan bílinn.
Arna Rún kom suður um helgina. Það var mjög skemmtilegt. Við fórum í Smáralindina að horfa á idolið á föstudaginn og Ína var algjör snilld. Það var bara mjög gaman í Smáralindinni. Eftir þáttinn fórum við aðeins að hitta Ínu og hún var ekki alveg að átta sig á því að hún væri á leiðinni til Parísar nokkrum tímum seinna.
Á laugardaginn vaknaði ég síðan rúmlega 8 til að fara að læra. Þegar ég var búinn að læra á milli 12 og 13 fór ég yfir í Kringluna þar sem Arna Rún, Hildur Eva, Hulda og Unnur voru. Þá tók við löng og ströng verslunarferð. Við vorum í Kringlunni og Smáralind til ca.17. Síðan klukkan 17:15 fékk ég hringingu frá pabba þar sem hann var að leyfa mér að heyra You'll never walk alone sungið. Það hefur ábyggilega verið nokkuð gaman að vera þarna.
Um kvöldið fórum við síðan að borða á Pizza Hut og fengum geðveikt góðar pizzur eins og venjulega á Pizza Hut. Kvöldið fór síðan bara í afslöppun. Stelpurnar lögðu síðan af stað heim um hádegið á sunnudag og þá keyrði ég bara til Keflavíkur.
Ég held ég hafi ekki frá meiru að segja. Bless í bili.

» 12 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 09:56:24 / gisliarni

Verkefni

Jæja, best að skella niður nokkrum orðum núna. Í dag er öskudagur, ég sit í matsalnu í skólanum en mér sýnist enginn hafa tekið upp á því að koma í búningi í skólan. Ég skil það nú ekki alveg. Það mætti halda að fólk sem er komið í háskóla sé vaxið upp úr svoleiðis löguðu. En það getur varla verið. Fólk er kannski að spara búninginn þangað til á eftir þegar það fer í búðir að syngja ;)
Annars er allt fínt að frétta af mér. Reyndar talsverð verkefnavinna í gangi þessa dagana en maður kemst nú í gegnum það. Síðan á föstudaginn kemur Arna Rún suður með vinkonum sínum og er stefnan sett á Smáralindina á föstudagskvöldið til að fara á Idol. Það verður ábyggilega mjög gaman. Það er bara vonandi að Ína haldi áfram að standa sig svona vel.
Síðustu 2 dagar hafa verið frekar rólegir hjá mér en þó talsverð verkefnavinna í gangi. Og þessi verkefnavinna heldur áfram allavega fram í miðja næstu viku. Er einmitt að fara að hitta hópinn minn í stofnun fyrirtækja klukkan 13 í dag og síðan hópinn minn í aðferðafræði klukkan 13:30. Það er nóg að gera...
Núna á föstudaginn eru pabbi, Siggi og Njáll að fara út til Liverpool að horfa á Liverpool – Charlton. Ég hefði nú ekkert á móti því að vera að fara á leik á Englandi en það verður að bíða betri tíma. Þetta á ábyggilega eftir að vera ótrúlega gaman hjá þeim.
Jæja, best að fara að lesa um starfsánægju.
Blessss....


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 09:22:52 / gisliarni

Húsavíkurferð

Sæl og blessuð, nú er helgin að baki og því um að gera að segja frá helstu atburðum hennar. Ég fór í skólann á föstudaginn síðasta og mætti í dæmatíma þar. Eftir dæmatímana fór ég síðan í próf í fjármálum fyrirtækja og tel ég mig bara hafa staðið mig nokkuð vel í því en þó veit maður aldrei nákvæmlega hvernig manni gengur í svona krossaprófum.
Strax eftir próf var stefnan sett á Reykjavíkurflugvöll þar sem ég þurfti að bíða í mjög langri röð til að komast í innritunina. Síðan var komið að flugina norður, það gekk vel og ég lenti á Akureyri klukkan 18:05, ef ég man rétt. Þá var bara farið beint upp í bíl og lagt af stað til Húsavíkur.
Þegar komið var á Húsavík þurfti maður að græja sig fyrir árshátíð á mettíma og komum við Arna Rún á árshátíðina rétt eftir að Steinn Ármann, veislustjóri kvöldsins, hafði byrjað að tala. Ég skemmti mér alveg konunglega og mér fannst Steinn Ármann alveg frábær. Síðan var ball um kvöldið og það var bara fínt.
Á laugardeginum var bara ákveðið að slaka á. Ég og Arna Rún vorum bara heima hjá henni og höfðum það rólegt. Reyndar þurfti ég að byrja daginn á því að vinna aðeins í hópverkefni(aldrei fær maður frí) en síðan tók við afslöppun. Á sunnudag horfði ég á síðan á Man Utd vinna Wigan sannfærandi 4-0 og það var fínt. Síðan bökuðum við Arna Rún eina Betty Crocker. Hún var mjög góð.
Síðan rétt fyrir 19 ákvað ég að það væri kominn tími á að fara að leggja af stað til Akureyrar en ég átti flug klukkan 20:25. Síðan þegar ég var að verða kominn inn í Eyjafjörð fæ ég SMS þar sem var tilkynnt að fluginu væri frestað og ég ætti ekki að mæta fyrr en klukkan 21:15 þannig að við ákváðum að fara aðeins á rúntinn og svona. Síðan fékk ég annað SMS og þá var verið að fresta fluginu meira og ég átti að mæta klukkan 21:40 en þá var víst svo mikil þoka í Reykjavík að flugvélarnar gátu ekki lent þar strax og því frestaðist flugið aftur norður og þar af leiðandi líka flugið mitt aftur suður.
En á endanum gekk þetta þó allt saman upp og ég gat komist suður. Ég kom heim milli 11 og 12 og fór þá bara beint í háttinn...
En ég læt þetta nægja núna. Endilega kvittið í gestabók og setjið skoðanir hérna ef þið hafið einhverjar skoðanir. Bæbæ...


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 08:51:31 / gisliarni

Árshátíð á morgun :)

Jæja, kominn tími á blogg. Það er nú ekkert voðalega margt að frétta af mér. Ég fór reyndar í klippingu í gær og er bara mjög sáttur með útkomuna þar. Það er komið frekar langt síðan ég hef verið svona ánægður með klippingu, en það er bara mín skoðun.
Síðan verður morgundagurinn líklega nokkuð fjörugur hjá mér. Ég byrja daginn á því að fara í skólann og undir lok skóladagsins fer ég í próf. Síðan ætla ég að biðja Finn um að vera tilbúinn fyrir utan skólann um leið og ég er búinn í prófinu til að skutla mér út á flugvöll því ég á flug tæpum klukkutíma eftir próf. Ég flýg norður og fer síðan beint upp í RAV4 og keyri til Húsavíkur. Ef að allt gengur upp ætti ég að vera kominn til Húsavíkur rúmlega 19 leytið og þá hef ég tæpan hálftíma til að stökkva í sturtu og klæða mig fyrir árshátíð FSH. Þetta verður svolítið stress því allt verður að ganga upp til að ég nái á árshátíðina í tæka tíð.
Í gær horfði ég á Chelsea – Barcelona og þetta er einn besti leikur sem ég hef séð í langan tíma. Barcelona voru alveg stórkostlegir á vellinum og unnu sannfærandi sigur. En Mourinho þurfti að sjálfsögðu að væla eitthvað eftir leikinn og kvarta yfir dómaranum. Hann virðist ekki geta sætt sig við tap þar sem andstæðingurinn var mikið betri aðilinn.
En ég held ég láti þetta nægja í bili. Skrifa meira seinna.

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 08:05:00 / gisliarni

Til hamingju Ísland

Jæja, þá er helgina að baki og ný skólavika að hefjast. Helgin var nokkuð fín og einkenndist hún svolítið af söngvakeppnum. Kjartan var í heimsókn hérna á suðurlandinu og hitti ég hann á föstudag og laugardag.
En annars byrjaði helgin á því að ég fór í skólann á föstudag og var eitthvað fram á miðjan dag í honum og fór síðan að hitta Finn og Kjartan. Við tókum hinn hefðbundna Kringlu/Smáralind rúnt og enduðum síðan á Players að horfa á Idolið eftir mikla leit að stað sem væri að sýna það. Ég benti einmitt á að það væri frekar furðulegt að vera að horfa á beina útsendingu á einhverju sem væri að fara fram einhverjum 300 metrum í burtu, en Players og Smáralind er frekar nálægt hvort öðru. En það breytir því ekki að þetta var mjög skemmtilegur þáttur og Ína hélt áfram standa sig mjög vel. Ég er frekar ánægður með að Elfa hafi dottið út því hún fór alltaf svolítið í taugarnar á mér. Kannski bara því mér fannst hún eiginlega aldrei neitt sérstök en samt elskaði dómnefndin hana. Eftir Idolið lá leiðin heim til Njarðvíkur.
Á laugardaginn fór ég aftur í bæinn og aftur á Players en núna til að horfa á Liverpool - Man Utd. Því miður átti mínir menn arfaslakan dag og töpuðu 1-0 með ógeðslegu marki frá ljósastaurnum í liði Liverpool. Alls ekki fallegt... En hins vegar gerðist ljótur hlutur í leiknum líka, en Alan Smith var að henda sér fyrir skot frá John Arne Riise og festi annan fótinn svona í grasinu og sneri upp á löppina á sér og er bara ökklabrotinn og ökklinn fór úr lið.
Eftir leikinn fórum við Kjartan einhvern smá rúnt, kíktum aðeins í Smáralind og Kringluna en síðan um kvöldið fórum við heim til Finns og horfðum á Undankeppni Eurovision. Þarna voru nokkur ágæt lög, að mínu mati. En samt var eitt sem var yfirburðaflottast og vann sannfærandi sigur. Ég bjóst nú ekki alveg við svona miklum yfirburðum en Silvía Nótt fékk rúmlega 70 þúsund atkvæði. En áður en úrslitin voru tilkynnt spáði ég því að Silvía myndi vinna, Friðrik Ómar myndi lenda í öðru sæti og Regína í því þriðja þannig að ég var ekki langt frá því að hafa þetta rétt.
Eftir Eurovision horfði ég á spaugstofuna en fór síðan bara heim eftir það.
Gærdagurinn fór síðan að hluta til í lærdóm, en við fórum líka í heimsókn til Njáls og Heiðu en Heiða átti afmæli í gær. Þar var boðið upp á kökur og þær voru mjög góðar.
En ég held að þetta sé orðið fínt núna. Bið að heilsa.

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 08:03:06 / gisliarni

Góðan daginn...

Jæja, ég sagðist ætla að fara að taka mig saman í andlitinu og vera duglegri að blogga. Ætli ég verði ekki að standa við það. Annars er nú ekkert voðalega mikið að frétta af mér. Fór reyndar í fyrsta miðannaprófið mitt í gær og ég held að það hafi bara gengið allt í lagi. Þetta var reyndar 100% krossapróf og það getur verið soldið erfitt að vita hvernig manni gekk í þannig prófum því ef það séu nokkrar spurningar sem maður heldur að maður hafi gert rétt en gerði vitlaust þá hrapar einkunnin hratt. En ég vona það besta.
Á morgun kemur pabbi suður með flugi ásamt Jóa en þeir ætla að vera hér um helgina. Pabbi kemur einmitt með síma handa mér í þessari ferð en mamma og pabbi ákváðu bara að gefa mér nýjan síma þar sem minn sími er orðinn ansi slappur. Batteríið í honum er orðið lélegt, takkarnir virka varla og síðan hringir síminn stundum ekki þó hann sé ekki á silent og stundum titrar hann ekki þegar hann á að gera það. Og síðan er myndavélin í honum hætt að virka, en það er reyndar aukaatriði. Þessi nýi sími á að vera verðlaun fyrir góðan námsárangur:) Ef það eru fleiri sem eru ólmir í að gefa þannig verðlaun þá vitiði hvar mig er að finna ;)  nei nei, smá djók....
Síðan er Kjartan að fara að koma suður í dag. Ég býst ekki við að hitta neitt á hann í dag þar sem ég nenni ekki að fara að bíða í bænum þangað til í kvöld því ég er búinn í skólanum fyrir hádegi en þarf reyndar síðan að fara á fund í stofnun fyrirtækja, en við erum að fara að hitta leiðbeinandann okkar þar. Þannig að ég býst bara við að hitta Kjartan á morgun og líklega eitthvað á laugardag líka, en stefnan er sett á að fara á Players eða eitthvað að horfa á Liverpool detta út úr bikarnum í hádeginu á laugardag8)
Ég held að þetta hljóti að vera orðið ágætt í bili. Fínt að vita til þess að ég er farinn að geta búið til sæmilega langan texta úr afar litlu efni þannig að ég ætti að geta haldið þessu bloggi gangandi;)
Meira síðar...

» 8 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 12:57:41 / gisliarni

Klukk...

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina :
1. Úrval
2. Kaskó
3. Bæjarvinnan
4. Gosáfylling

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur :
1. Hot shots myndirnar
2. Ace Ventura myndirnar
3.  Pirates of hte Caribbean
4. Lion King

Fjórir staðir sem ég hef búið á : (ég ætla að fá að fjölga þeim aðeins;)
1. Þingskálar 4, Hella
2. Túngata 9, Keflavík
3. Mávabraut 9, Keflavík
4. Hrauntún 12, Keflavík
5. Greniteigur 6, Keflavík
6. Laugarholt 7b, Húsavík
7. Heiðarvegur ??, Húsavík
8. Sólvellir 1, Húsavík

9.Ketilsbraut 18, Húsavík
10. Sólbrekka 5, Húsavík
11. Stórhóll 55, Húsavík
12. Fífumói 3, Njarðvík


Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar :
1. Idol
2. Simpson
3. Friends
4. Family guy

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg :

1. fotbolti.net
2. manutd.is
3. ru.is
4. b2.is

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum :
1. Manchester
2. Holland
3. Þýskaland
4.  Ásbyrgi :)

Fernt matarkyns sem ég held uppá :
1. Hangikjöt
2. Hamborgarhryggur
3. Pizza
4. Hamborgari

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna :
1. Húsavík
 2. Manchester
 3. Spánn
4. Heima sofandi ;)


Bloggarar sem ég klukka:

 

 Allir sem lesa þetta




» 2 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 11:28:19 / gisliarni

Ég held áfram...

Jæja, ég sagðist ætla að láta niðurstöður skoðanakönnunarinnar ráða framtíð þessarar síðu og það ætla ég að standa við þannig að ég verð víst að taka mig saman í andlitinu og byrja að blogga almennilega. Á þessari viku sem skoðanakönnunin var uppi komu inn 27 atkvæði sem verður að teljast ágætt held ég, sérstaklega miðað við það hversu latur ég hef verið við að blogga. Grunsemdir hafa þó vaknað um að einhverjir hafi kosið oftar en einu sinni en þar sem niðurstöðurnar voru svo afgerandi verður engin rannsókn á niðurstöðunum.
En um helgina var stefnan sett á Húsavík. Mikil óvissa hafði verið um ferðina þar sem kærasta Orra Freys(bróður Örnu Rúnar) var ólétt og átti að fara að fæða. En hún hafði ekkert fætt á föstudag þannig að ferðin var farin. Ég kom á Húsavík um kvöldmatarleytið á föstudag og ég fór þá strax til Örnu Rúnar. Síðan horfðum við á Idolið og þáttinn sem er á eftir því. Síðan kíktum við út og tókum tvo hringi í bænum en ákváðum síðan bara að fara heim að sofa.
Á laugardagsmorgun var ég vakinn með þeim fréttum að Hjördís væri búin að fæða stúlku og því var ákveðið að stökkva upp í bíl eftir hádegið og bruna suður. Þannig að þetta var frekar stutt stopp á víkinni. Við vorum komin til Reykjavíkur á milli 19 og 20 og við fórum bara beint upp á spítala að sjá barnið. Við gerðum nú eitthvað fátt um kvöldið, horfðum eitthvað á sjónvarp og svona en fórum síðan heim til frænda Örnu Rúnar þar sem við fengum að gista.
Sunnudagurinn fór síðan í að sjá barnið aftur og skreppa í bakarí og svona. Síðan fór Arna Rún aftur heim um miðjan daginn og þá fór ég upp í skóla til að bíða eftir rútunni heim kl.18.
Í morgun fékk ég síðan bara far í bæinn með Sússu og Herði og fór að hitta hópinn minn í Stofnun fyrirtækja og við vorum að láta hugann reika varðandi viðskiptahugmyndir.
Síðan er að koma að fyrsta miðannaprófinu en það er á miðvikudag klukkan 9 í þjóðhagfræði. Það þýðir að dagurinn í dag og á morgun verður mikið notaður í lærdóm.
Ég held ég láti þetta nægja í bili. Ég ætla að biðja alla sem lesa þetta um að skrifa komment. Það þarf ekki að vera merkilegt komment, bara láta vita að þið hafið lesið þetta svo ég hafi einhverjar hugmynd um það hverjir eru að skoða síðuna. Þá get ég kannski séð hvort að þessi 27 atkvæði séu raunhæf. Sem sagt ALLIR að skrifa komment...
Meira síðar....


» 11 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 14:06:34 / gisliarni

Ny könnun

Jæja, fyrst folk er eitthvað farið að setja uta það að eg bloggi ekki nogu oft er liklega kominn timi a að fara að skella einhverju inn. Eg verð að biðjast afsökunar a að það vantar kommur fyrir ofan broddstafi. Tölvan er með einhver leiðindi gagnvert mer. En annars er skolinn kominn a fullt. Buinn að skila einu hopverkefni og við vorum hæstir i afanganum með 9,75. Siðan vorum við að skila skyrslu tengda fyrsta verkefninu i gærkvöldi og það er bara að vona að hun verði lika goð. Annars er ekki mikið að fretta af mer personulega. Siðustu dagar hafa bara farið i skola þar sem talsverð vinna for i þessa skyrslu. Um daginn kikti eg aðeins i heimsokn i ibuðina hja Finni og Birgittu og er þetta alveg agætis ibuð syndist mer. A föstudaginn sotti eg pabba sem var að koma suður með flugi til að fara i skolann. Hann flaug siðan aftur heim i gær. Eg held að það seu yfirgnæfandi likur a þvi að Silvia Nott fari i Eurovision svo framarlega að hun verði ekki rekin ur keppni. Hun er bara með langflottasta lagið og a eftir að pakka saman þessari undankeppni. Siðan horfði maður a idolið a föstudag og það var skemmtilegt fannst mer. Eg var anægður með að Angela datt ut þvi hun hefur einhvern veginn alltaf farið i taugarnar a mer. Eg veit ekki hvað það er við hana. Siðan fer að styttast fljotlega i miðannaprofin... Það verður svaka stuð....;) I dag var fyrsti timinn i afanganum “Stjornun fyrirtækja” og eg fekk að sja með hverjum eg verð i hop. Eg þekki nu engan þeirra sem er i hopnum en það a liklega eftir að breytast fljotlega. Við erum tveir strakar i hopnum og siðan eru fjorar stelpur. Hinn strakurinn heitir einmitt lika Gisli. Eg held eg lati þetta nægja i bili. Eg ætla að reyna að fara að vera duglegri að blogga. Eg er reyndar buinn að vera að spa i að taka mer kannski frekar 2-3 vikna fri fra blogginu og byrja siðan endurnærður eftir það eða að reyna að koma mer bara strax i gang.... Eg er að hugsa um að leyfa ykkur að kjosa um það. Eg nota niðurstöður kosninganna eins og staðan verður eftir næstu helgi.

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti